Vísindadagur sálfræðinga á geðsviði Landspítala 2011, sá tíundi í röðinni, verður föstudaginn 14. október í Hringsal.
Á vísindadeginum verða flutt erindi er endurspegla sálfræðiþjónustu á spítalanum. Sagt verður frá nýlegum rannsóknum sálfræðinga, nemenda þeirra og samstarfsmanna á spítalanum og kynnt áhugaverð meðferðartilfelli, auk þess sem veggspjöld er lýsa niðurstöðum rannsókna verða til sýnis.