Ína Rós Jóhannesdóttir geðhjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin deildarstjóri á móttökugeðdeild 32A á Landspítala frá 1. október 2011.
Ína Rós útskrifaðist með BSc gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 1998 og hefur unnið síðan við geðhjúkrun á Landspítala. Meðal verkefna Ínu Rósar eru störf á móttökugeðdeild 33C, dagskrárstjórn á dagdeild átröskunarteymis og málastjórn í átröskunarteymi LSH.
Ína Rós lauk diplómanámi í geðhjúkrun frá HÍ árið 2006 og diplómanámi í hugrænni atferlismeðferð árið 2007.