Fimm daga deild líknardeildar Landspítala í Kópavogi var lokað 31. október 2011 vegna læknaskorts og verður hún lokuð til áramóta.
Fimm daga deildin hefur verið opin mánudaga til föstudaga og er ætluð sjúklingum með ólæknandi langt genginn sjúkdóm sem dvelja heima eða eru á leið heim eftir langa sjúkrahúsdvöl. Á deildinni eru fjögur legurými. Lagt er upp með að sjúklingar dvelji 1-3 vikur.
Helstu ástæður innlagna á líknardeildina eru einkennameðferð, endurhæfing, hvíld fyrir sjúkling eða aðstandendur þannig að sjúklingur geti dvalið lengur heima.