Hringskonur verða með sitt mánaðarlega söluborð í anddyri barnaspítalans mánudaginn 7. nóvember 2011, kl. 9:00–14:00. Seldar verða prjónavörur á ungabörn, ungbarnateppi, rúmfatnaður og fleira, allt handunnið af Hringskonum.
Allur ágóðinn rennur óskertur í Barnaspítalasjóð Hringsins.
Hringurinn er kvenfélag, stofnað árið 1904. Félagið hefur að markmiði að vinna að líknar- og mannúðarmálum, sérstaklega í þágu barna. Aðalverkefni félagsins um áratugaskeið hefur verið uppbygging Barnaspítala Hringsins. |