Sameiginleg fréttatilkynning Háskóla Íslands og Landspítala um rannsókn á heilbrigðisþjónustu varðandi ofbeldi í nánum samböndum
Í fyrradag, 5. desember, urðu þau alvarlegu mistök hjá starfsmanni á vegum Háskóla Íslands að tölvupóstur með boði um þátttöku í rannsókn á vegum Háskóla Íslands, Landspítala og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins var sendur út með þeim hætti að viðtakendur póstsins sáu netföng hvers annars. Afleiðingarnar eru þær að sjá má netföng fólks sem hefur leitað á vissar göngudeildir Landspítala á ákveðnu tímabili.
Um er að ræða mikilvæga rannsókn á hugsanlegri reynslu einstaklinga af ofbeldi í nánum samböndum. Leyfi Vísindasiðanefndar lá fyrir um framkvæmd rannsóknarinnar. Seinna fékkst viðbótarleyfi nefndarinnar til að senda spurningalista rannsóknarinnar á netfang það er skjólstæðingar viðkomandi göngudeilda gáfu upp. Ekki var leitað til framkvæmdastjóra lækninga sem ber ábyrgð á vörslu sjúkraskráa spítalans varðandi viðbótarleyfi til þess að nota tölvupóst með þessum hætti. Óskað var leyfis til að hafa samband í tölvupósti vegna áhyggna af því að bréf eitt sér ætti frekar á hættu að vera lesið af hugsanlegum gerendum í ofbeldismálum. Hins vegar er ljóst að í þessu tilfelli var ætlunin að senda tölvupóstinn persónulega á hvern einstakling, ekki fjölpóst. Það voru alvarleg mistök hjá starfsmanni Háskóla Íslands sem ekki verða dregin til baka, því miður, en við viljum fyrir hönd Háskóla Íslands og Landspítala biðjast afsökunar á þessum mistökum.
Þegar mistökin urðu ljós í gær, ákvað Vísindasiðanefnd að afturkalla leyfi til rannsóknarinnar tímabundið á meðan rannsókn á tildrögum málsins fer fram. Málið er ennfremur til meðferðar hjá Persónuvernd. Framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala og Háskóli Íslands munu láta gera sérstaka rannsókn á málinu og markmið hennar eru að hliðstæð mistök verði ekki endurtekin. Miklu máli skiptir að traust almennings á vísindarannsóknum og skilningur á mikilvægi þeirra bíði ekki tjón.
Einstaklingum sem líður illa vegna póstsins eða telja sig hafa orðið fyrir skaða vegna þessa máls er boðið að hafa samband við geðsvið Landspítala. Guðrún Úlfhildur Grímsdóttir deildarstjóri (gudrgrim@landspitali.is) og Þorgerður Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur sem og annað starfsfólk göngudeildar geðsviðs (gongudeildgh@landspitali.is) er reiðubúið að veita upplýsingar og stuðning í síma 543 4050 eða í tölvupósti.
7. desember 2011
Virðingarfyllst,
Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs
Háskóla Íslands
Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga
á Landspítala