Niðurstöður ferðavenjukönnunar meðal þeirra sem eiga erindi við Landspítala eru birtar á vefnum um byggingu nýs spítala, www.nyrlandspitali.is. Könnunin leiðir meðal annars í ljós að meira en helmingur fólks var innan við 10 mínútur að komast á spítalann frá heimili sínu eða síðasta áfangastað. Langflestir innan við 20 mínútur.
Könnunin var gerð í fyrri hluta nóvembermánaðar 2011 vegna undirbúnings byggingar nýs Landspítala. Talað var við alla sem fóru um innganga á Landspítala Hringbraut og Landspítala Fossvogi nema starfsfólk spítalans.