Á bráðadeginum föstudaginn 2. mars 2012 stendur bráðasvið Landspítala fyrir málþingi undir yfirskriftinni "Gæði og öryggi" með fjölbreyttri dagskrá.
Málþingið verður á Hótel Natura (áður Hótel Loftleiðir) í Reykjavík frá kl. 9:00 til 15:00. Það er öllum öllum opið og aðgangur ókeypis fyrir starfsfólk bráðasviðs en aðgangseyrir fyrir aðra er 5.000 krónur.
Þátttaka tilkynnist í tölvupósti: eddath@landspitali.is eða í síma 543 2070