Elín Hanna Laxdal læknir hefur verið ráðin til að gegna starfi yfirlæknis æðaskurðlækninga við skurðlækningasvið LSH frá og með 9. mars 2007 að telja. Ráðningin er á grundvelli umsóknar um stöðuna, umfjöllunar í stöðunefndum landlæknisembættisins og læknaráðs LSH, viðtals og að fenginni umsögn stjórnarnefndar LSH. Yfirlæknir æðaskurðlækninga starfar samkvæmt starfslýsingu. |
Ráðin yfirlæknir æðaskurðlækninga
Elín Hanna Laxdal hefur verið ráðin yfirlæknir æðaskurðlækninga á Landspítala - háskólasjúkrahúsi.