Erla Dögg Ragnarsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin til að gegna starfi hjúkrunardeildarstjóra almennrar skurðdeildar 13G á skurðlækningasviði frá 1. apríl 2007. Erla Dögg var sett í stöðuna undanfarna 15 mánuði en ráðning hennar nú er á grundvelli umsóknar um stöðuna, umfjöllunar í stöðunefnd hjúkrunarráðs LSH og viðtals.
Hjúkrunardeildarstjórar á LSH starfa samkvæmt starfslýsingu.