15. febrúar 2024 - kl. 09:00 - 15:30
Staðsetning: Ráðstefnan fer fram stofu M209 í Háskólanum í Reykjavík og í beinu streymi.
Verð: 29.900 kr.
Opni háskólinn í HR, deildir íþróttafræði og sálfræði Háskólans í Reykjavík, í samstarfi við Landspítala og heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, standa að ráðstefnunni Vöðvaverndardagurinn 15. febrúar 2024.
Viðburðurinn er fyrsta skrefið í tímamótanálgun tveggja vísindasviða í heilbrigðismálum á Íslandi. Erlendir og íslenskir fræðimenn á sviðum heilbrigðisvísinda og íþróttavísinda verða með erindi til að opna á samtal milli fagstétta í heilbrigðiskerfinu og íþróttafræðinnar.
Ráðstefnan varpar ljósi á vöðvavernd á efri árum. Erindi fjalla um þá þekkingu sem er til staðar í dag á fyrirbærinu sarcopenia (tap á vöðvastyrk og -massa) og þau úrræði sem eru til staðar við að fyrirbyggja vöðvatap með hækkandi aldri, þvert á svið vísinda.
SKRÁNING
Aðalfyrirlesarar
- Dr. Maria Fiatarone Singh, öldrunarlæknir og prófessor við háskólann í Sydney, Ástralíu
- Dr. Stuart M Phillips, prófessor við McMaster háskólann í Kanada
Aðrir fyrirlesarar
- Dr. Hanna S. Steingrímsdóttir, Dósent við Sálfræðideild HR
- Dr. Ólöf Guðný Geirsdóttir, prófessor og deildarforseti Matvæla- og næringarfræðideildar HÍ
- Dr. Rainer Rawer, doktor í rafmagnsverkfræði og yfirmaður tækniþróunar hjá Novotec Medical GmbH.
- Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir og yfirlæknir öldrunar Landspítala
- Arnar Hafsteinsson, íþróttafræðingur og doktorsnemi við heilbrigðisvísindasvið HÍ
- Andrew McCauley, sjúkraþjálfari frá ProCare Sports Medicine