kl. 8:45 til 16:00
Norræn ráðstefna um áfengi og lýðheilsu. Heilbrigðisráðuneytið stendur að ráðstefnunni í samvinnu við Embætti landlæknis.
Ráðstefnan um áfengi og lýðheilsu er meðal viðburða sem heilbrigðisráðuneytið stendur fyrir á formennskuári Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Hún fer fram á ensku og ber yfirskriftina „Alcohol and Public Health in the Nordics.“
Aðgangur er ókeypis.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna, fyrirlesara, dagskrá og skráningu í ítarefni.