Vegna niðurskurðar til vísindasjóða og aukinnar verðbólgu hafa framlög til vísindarannsókna lækkað umtalsvert á síðustu árum.
Vísindasamfélagið vill bregðast við með því að benda á verðmæti vísinda fyrir samfélagið, óháð fræðasviði. Að þessu málþingi standa saman Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna og FEDON, félag doktorsefna og nýrannsakenda við HÍ.
Málþingið fer fram í stofu M208 í Háskólanum í Reykjavík, fimmtudaginn 16. maí kl. 14.00-15.30.
Dagskrá
Forsenda nýsköpunar: Áhrif vísinda á íslenskt samfélag.
• Hverju skila lífvísindin til samfélagsins? - Erna Magnúsdóttir, dósent HÍ
• Fjármögnun grunnrannsókna: Næring fyrir nýsköpun. - Sigurður Ingi Erlingsson, prófessor HR
• Áhrif samningsleysis á unga rannsakendur: Jafnrétti og samfélagsleg gæði í húfi. - Svava Dögg Jónsdóttir doktorsnemi HÍ/formaður FEDON
• Frumkvöðlar á sviði fræða: Áhugadrifnar rannsóknir og samfélagsleg nýsköpun. - Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir, ReykjavíkurAkademíunni
• Verðmætasköpun, samfélagsleg áhrif og gagnrýnin hug- og félagsvísindi: Þorgerður Einardsóttir, prófessor HÍ
Fundarstjóri: Magnús Karl Magnússon, prófessor við HÍ. https://www.facebook.com/events/807654974187415