Nokkur umræða hefur skapast á Íslandi um hvenær, hvort og hvernig eigi að láta þátttakendur í vísindarannsóknum vita af niðurstöðum sem varða heilsu þeirra og hafa fengist úr sýnum frá þeim sem eru rannsökuð í vísindaskyni. Þar getur t.d. verið um að ræða niðurstöður sem liggja utan eðlilegra marka í mælingum eða niðurstöður erfðarannsókna. Ýmsar áleitnar spurningar hafa vaknað um það hvort og þá hvernig eigi að upplýsa um slíkt.
Vísindasiðanefnd boðar til málþingsins til þess að gefa tækifæri til umræðu sem leitt gæti til mótunar almennrar stefnu Vísindasiðanefndar í slíkum tilfellum.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra opnar málþingið með ávarpi. Þá flytja erindi á fundinum Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir siðfræðingur, Hrefna Dögg Gunnarsdóttir lögfræðingur, Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, og Sigurdís Haraldsdóttir sérfræðilæknir. Að loknum erindum verða pallborðsumræður. Fundarstjóri verður Þorvarður Jón Löve formaður Vísindasiðanefndar.
Vísindasiðanefnd hvetur öll til að mæta, hlusta og taka þátt í þessari mikilvægu umræðu.
Dagskrá málþingsins:
13:00 – 13:10
Ávarp heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson.
13:10 – 13:30
Sjónarhorn siðfræðings, Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir.
13:30 – 13:50
Sjónarhorn lögfræðings, Hrefna Dögg Gunnarsdóttir.
13:50 – 14:10
Hlé, léttar veitingar
14:10 – 14:30
Sjónarhorn rannsakanda, Kári Stefánsson.
14:30 – 14:50
Sjónarhorn læknis, Sigurdís Haraldsdóttir.
14:50 – 15:30
Pallborðsumræður með frummælendum og fundarstjóra.
15:30
Málþingi slitið.
Nánari upplýsingar má finna hér.