Alþjóðlegur dagur næringar er haldinn fimmtudaginn 9. nóvember og geta sjúkrastofnanir í tilefni dagsins tekið þátt í eins dags stöðumati á næringarástandi sjúklinga og verkferlum sem tengjast næringu.
Næringarfræðingar Landspítala ásamt nemum í klínískri næringarfræði við Háskóla Íslands meta áhættu á vannæringu hjá öllum inniliggjandi sjúklingum á Landspítala.
- Vannæring meðal inniliggjandi sjúklinga er oft tengd sjúkdómi og/eða meðferð hans.
- Á Landspítala er tíðni vannæringar 20-60%, mismunandi eftir sjúklingahópum.
- Vannæring getur haft í för með sér lengri sjúkrahúslegu og meiri kostnað fyrir heilbrigðiskerfið.
- Markmiðið með alþjóðlegum degi næringar er að vekja athygli á vannæringu á sjúkrastofnunum og mikilvægi þess að meta áhættu á vannæringu hjá inniliggjandi sjúklingum.