Fagdeild taugahjúkrunarfræðinga á Íslandi og Evrópusamtök taugahjúkrunarfræðinga, EANN, halda 14. ráðstefnu, dagana 25.-27. maí 2023 í Reykjavík.
Ráðstefnudagskrá felur í sér m.a. lykil fyrirlesara frá Ástralíu, Bretlandi, Írlandi og Íslandi.
Aðalþema ráðstefnunnar er “Horft til framtíðar og fögnum framþróun í taugahjúkrun”. Þar að auki má búast við mörgum fyrirlestrum, ýmis konar vinnusmiðjum og veggspjaldakynningum sem sýna ferli í hjúkrun taugasjúklinga.