Norrænt nýrnalækningaþing verður í Reykjavík 13-16. september 2023.
Þing norrænu nýrnalæknasamtakanna er haldið annað hvert ár með fjölbreyttri dagskrá um nýrnasjúkdóma, skilunarmeðferð, ígræðslu og margt fleira. Áhugavert fyrir alla sem sinna bráðum og langvinnum nýrnasjúkdómum.