Samskiptateymi Landspítala boðar til málþings til heiðurs Jóni Baldvini Halldórssyni en hann lætur að störfum næstu mánaðamót eftir 25 ára starf á Landspítala.
Jón Baldvin var ráðinn til starfa sem upplýsingafulltrúi á bæði Landspítala og Sjúkrahús Reykjavíkur árið 1999 og var einn af fyrstu þremur starfsmönnunum sem sinna átti báðum spítölum. Hann var því innsti koppur í búri í sameiningu spítalanna árið 2000 og átti einnig forgöngu um að byggja upp virka upplýsingamiðlun um málefni spítalans.
Á málþinginu verður litið yfir farinn veg og fjallað um sameiningu spítalanna, fyrirheitið um öflugt háskólasjúkrahús og hina miklu baráttu fyrir því að staðið yrði við gefin loforð um að reisa Nýjan Landspítala. Samofnar þessari sögu eru hinar miklu breytingar sem hafa orðið á fjölmiðlun frá aldamótum og þróun í miðlun um heilbrigðismál. Loks verður horft til framtíðar við gerbreyttar aðstæður í nýju húsnæði við Hringbraut.
Málþingið er öllum opið. Samstarfsfólk Jóns Baldvins í tímans rás og áhugafólk um heilbrigðismál og fjölmiðlun er sérstaklega hvatt til að mæta.
Dagskrá - smella á Hlaða niður ítarefni