Viltu vera á skrá? Hjúkrunarnemi
Landspítali er suðupunktur þekkingar, þróunar og þverfaglegrar samvinnu. Lögð er áhersla á fagmennsku, framþróun og stöðugar umbætur. Við stefnum á að vera einn besti vinnustaður landsins sem býður upp á gott starfsumhverfi og samkeppnishæf kjör.
Veitt er markviss og einstaklingshæfð aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum.
Vilt þú taka þátt í vegferðinni með okkur? Í þessum starfaflokki er eingöngu ráðið í tímabundnar stöður s.s.
- Störf við verkefni sem standa í tvo mánuði eða skemur
- Störf við afleysingar sem ekki er ætlað að standa lengur en 12 mánuði samfellt
Allar ótímabundnar stöður eru auglýstar og þarf að sækja um þær sérstaklega. Í boði eru störf vítt og breitt um spítalann. Hvar liggur þinn áhugi?
Vinsamlega skráið í "Annað" reitinn óskir um svið/deild.
Sækja þarf um auglýst störf sérstaklega.
- Hlutverk og ábyrgð er í samræmi við starfslýsingar hjúkrunarnema eftir lengd náms
- Þátttaka í teymisvinnu
- Þátttaka og innleiðing nýjunga innan hjúkrunar
- Hjúkrunarnemi á 1.-4. ári
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
- Hæfni og vilji til að vinna í teymi
- Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Upphafsdagur starfa sem og starfshlutfall er samkomulag.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta,hjúkrunarnemi, hjúkrun