Sjúkraliði óskast á bráðaöldrunarlækningadeild
Við leitum eftir jákvæðum og lífsglöðum sjúkraliða sem hefur áhuga á að hjúkra öldruðum. Bráðaöldrunarlækningadeild b4 í Fossvogi er bráðadeild með 22 rúm og fer þar fram greining og meðferð bráðra sjúkdóma hjá öldruðum. Á deildinni starfa um 60 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Lögð er áhersla á góð samskipti við sjúklinga, fjölskyldur þeirra og samstarfsfólk á deild.
Vinnutími og starfshlutfall er eftir samkomulagi og dagvinna kemur vel til greina. Við tökum vel á móti nýliðum og veitum góða aðlögun. Áhugasamir hafi samband við Sólbjörgu Sólversd. Vestergaard, deildarstjóra. Það er velkomið að kíkja í heimsókn. Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
- Móttaka og kennsla sjúkraliðanema
- Móttaka, fræðsla og aðlögun nýs starfsfólks
- Virk þátttaka í fjölskylduhjúkrun
- Virk þátttaka í teymisvinnu
- Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Faglegur metnaður og framsækni í starfi
- Sveigjanleiki, jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
- Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Hæfni til að vinna í teymi
- Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar
- Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 3/5,