Sérfræðilæknir í meltingarlækningum
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í meltingarlækningum innan lyflækningaþjónustu Landspítala.
Á meltingarlækningaeiningunni fer m.a. fram uppbygging sérhæfðra þjónustuteyma í samstarfi við aðrar sérfræðigreinar og fagstéttir, framsækin starfsemi við meltingarvegsspeglanir bæði í greiningar- og meðferðarskyni og metnaðarfullt vísindastarf. Við eininguna gefast tækifæri til að vaxa og þróast áfram í starfi að loknu sérnámi og taka þátt í áhugaverðum verkefnum.
Við sækjumst eftir sérfræðilækni með breiða þekkingu og reynslu í meltingarlækningum og almennum lyflækningum. Miðað er við 100% starfshlutfall.
Starfið er laust frá 1. mars 2025 eða eftir samkomulagi.
- Vinna á legu-, speglunar- og göngudeild meltingarlækninga
- Vinna við ráðgjöf á öðrum deildum Landspítala
- Þátttaka í vaktþjónustu meltingarlækna
- Þátttaka í kennslu læknanema og námslækna
- Þátttaka í vísindastarfi
- Íslenskt sérfræðileyfi í almennum lyflækningum og meltingarlækningum
- Góð þekking og reynsla í meltingarlækningum, speglun meltingarvegar og almennum lyflækningum
- Reynsla af kennslu
- Reynsla og áhugi á klínískum rannsóknum í meltingarlækningum mikils metin
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 2/5,