Hjúkrunarfræðingur - HERA sérhæfð líknarþjónusta
Leitum eftir öflugum hjúkrunarfræðingi sem vill ganga til liðs við okkur í HERU sérhæfðri líknarheimaþjónustu. Á deildinni ríkir góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði, metnaði, skipulagi og sveigjanleika. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust frá 1. janúar 2025 eða samkvæmt samkomulagi. Unnið á vöktum alla daga frá kl. 8-16 eða kl. 13-21, bakvaktir eru síðan frá kl. 21-8. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða aðlögun.
HERA veitir sjúklingum með langt gengna ólæknandi sjúkdóma sérhæfða þjónustu sem miðar að því að gera þeim kleift að vera sem lengst heima sem og þeim sem óska þess að deyja heima. HERA er staðsett að Kópavogsgerði 4 í Kópavogi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Veitir hjúkrun, einkennameðferð, ráðgjöf og stuðning til einstaklinga með langt gengna ólæknandi sjúkdóma sem og aðstandenda þeirra heima
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Þátttaka í þróun og uppbyggingu verkefna
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Reynsla af hjúkrun einstaklinga með krabbamein eða reynsla af hjúkrun í heimahúsum æskileg
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfni
- Faglegur metnaður
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Geta og hæfni til að vinna í teymi
- Íslenskukunnátta
- Gilt ökuleyfi
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5,