Svæfingahjúkrunarfræðingur - Svæfingadeild Fossvogi
Við óskum eftir að ráða til starfa metnaðarfullan hjúkrunarfræðing með sérhæfingu í svæfingahjúkrun. Í boði er starf á frábærum vinnustað þar sem samvinna, faglegt starf, þróun og öryggi sjúklinga eru höfð að leiðarljósi. Unnið er í vaktavinnu á þrískiptum vöktum. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust frá 1. febrúar 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
Á svæfingadeild Landspítala í Fossvogi starfa um 30 svæfingahjúkrunarfræðingar við fjölbreytt og krefjandi verkefni, í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Við bjóðum upp á góðan vinnustað þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, framþróun og þjálfun eftir þörfum hvers og eins.
- Svæfingar og deyfingar sjúklinga við skurðaðgerðir og önnur inngrip
- Ákveða, skrá og veita hjúkrunarmeðferð í samráði við þarfir skjólstæðinga og bera ábyrgð á meðferð samkvæmt starfslýsingu og vinnureglum deildar
- Símainnritun sjúklinga fyrir dagdeildaraðgerðir
- Verkjaeftirliti ásamt öðrum sérhæfðum verkefnum á ýmsum deildum spítalans
- Þátttaka í teymisvinnu og umbótastarfi deildar
- Ýmis önnur verkefni
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Viðbótarnám í svæfingahjúkrun er skilyrði
- Áhugi á að taka þátt í framþróun hjúkrunar
- Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Hæfni og geta til að starfa í teymi og takast á við breytingar
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Vinnuvika starfsfólks í vaktavinnu er nú 36 stundir sem getur orðið meiri eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf, þannig að störf í vaktavinnu verði eftirsóknarverðari.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, sérfræðingur í hjúkrun, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5