Sérfræðilæknir í barnalækningum - Barnaspítali Hringsins
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis við Barnaspítala Hringsins. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá 1. mars 2025 eða eftir samkomulagi. Gert er ráð fyrir að viðkomandi sérfræðilæknir sinni hjartalækningum í 50% starfi og almennum barnalækningum í 50% starfi.
Á Barnaspítalanum er veitt sérhæfð fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri. Í allri þjónustu er áhersla lögð á að greina þarfir og auka vellíðan skjólstæðinganna, með gildi Landspítala um umhyggju, fagmennsku, öryggi og framþróun að leiðarljósi. Samskipti sem byggja á virðingu og stuðningi við börnin og fjölskyldur þeirra er mikilvægur þáttur í starfsemi Barnaspítalans.
- Sérfræðistörf í samráði við viðkomandi yfirlækni
- Þátttaka í almennu starfi barnalækna á Barnaspítala Hringsins, þ.m.t. staðar- og gæsluvöktum samkvæmt vaktafyrirkomulagi
- Virk þátttaka í þverfaglegu teymi
- Skipulag og þróun umbótaverkefna og verkferla
- Þátttaka í kennslu og vísindavinnu sem og önnur sérverkefni, umsjónarstörf eða eftirlitsverkefni í samráði við yfirlækni og prófessora
- Íslenskt sérfræðileyfi í barnalækningum
- Undirsérgrein í hjartalækningum
- Jákvætt viðmót og mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Vilji og hæfni til að starfa í þverfaglegu teymi
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
- Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsækjendur skulu framvisa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 5/5