Skrifstofustjóri klínískrar rannsókna- og stoðþjónustu
Laust er til umsóknar starf skrifstofustjóra klínískrar rannsókna- og stoðþjónustu Landspítala. Leitað er eftir öflugum einstaklingi til að annast fjölbreytt starf í samvinnu við starfsfólk á sviðsskrifstofu og framkvæmdastjóra. Starfið er 100% dagvinna og ráðið er í það frá 1. febrúar 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
Starfsumhverfið er fjölbreytt, fer að mestu fram í opnu rými á starfsstöð spítalans í Skaftahlíð 24 og eftir atvikum á öðrum starfsstöðvum spítalans. Rík áhersla er lögð á sjálfstæði og frumkvæði í starfi og mikla samskiptafærni.
Gert er ráð fyrir samstarfi með skrifstofustjórum annarra klínískra þjónustusviða m.t.t. verkefna og afleysinga.
- Skrifstofuhald og daglegur rekstur sviðs skv. nánari starfslýsingu skrifstofustjóra s.s. gagnavinnsla, umsýsla funda og fundagerðir, umsjón og úrvinnsla starfsmannaatvika
- Styðja við starfsemi sviðs með stjórnun og skipulagningu sviðsskrifstofu í samráði við framkvæmdastjóra
- Stuðningur og samvinna við forstöðumenn, mannauðsstjóra og fjármálastjóra sviðs. Starfið lýtur meðal annars að aðstoð við bókhald, tekjuskráningu, innkaup og skráningu og yfirferð mannauðskerfis (Vinnustund).
- Stúdentspróf eða annað sambærilegt nám sem nýtist í starfi er skilyrði
- Viðeigandi menntun á háskólastigi æskileg
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar
- Fagmennska, umhyggja og virðing í samskiptum
- Hæfni til að miðla upplýsingum til ólíkra hópa
- Skipulögð, nákvæm, vönduð og öguð vinnubrögð
- Hæfileiki til að tileinka sér nýjungar og sjálfstæði í starfi
- Jákvætt og hvetjandi viðmót
- Góð tölvufærni
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði talað og ritað mál
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Skrifstofustjóri,
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5