Skurðhjúkrunarfræðingur á skurðstofur í Fossvogi
Við leitum eftir skurðhjúkrunarfræðingi til starfa á skurðstofur í Fossvogi. Í boði eru áhugavert starf með góðu samstarfsfólki þar sem unnið er á þrískiptum vöktum auk bakvakta samkvæmt vaktskipulagi deildar eftir að þjálfun lýkur. Starfið eru laust frá 1. febrúar eða eftir nánara samkomulagi og er starfshlutfall samkomulag.
Á deildinni eru 8 skurðstofur sem þjóna 5 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 6000 aðgerðir. Á deildinni starfa um 90 einstaklingar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi.
Í boði er einstaklingsaðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins á skemmtilegum vinnustað.
- Einstaklingshæfð hjúkrun við undirbúning, framkvæmd og skil í skurðaðgerðum samkvæmt skipulagi deildar
- Ákveður, skráir og veitir hjúkrunarmeðferð í samráði við þarfir skjólstæðinga
- Ber ábyrgð á meðferð, samkvæmt starfslýsingu og vinnureglum deildar
- Þátttaka í teymisvinnu og umbótastarfi deildar
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Sérnám í skurðhjúkrun
- Faglegur metnaður
- Góð samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og færni í teymisvinnu
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Vinnuvika starfsfólks í vaktavinnu er nú 36 stundir sem getur orðið meiri eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf, þannig að störf í vaktavinnu verði eftirsóknarverðari.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, skurðhjúkrunarfræðingur, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5 - 5/5