Sumarstörf 2025 í geðþjónustu - viltu vera á skrá?
Viltu starfa sumarið 2025 hjá geðþjónustu Landspítala sem ráðgjafi/stuðningsfulltrúi í afleysingum? Hér geturðu skráð inn umsókn. Ráðgjafar/stuðningsfulltrúar sinna líkamlegri og andlegri umönnun sjúklinga, m.a. félagslegri þjálfun og eftirfylgd með líðan og virkni og framfylgja meðferðaráætlunum.
Í boði eru fjölbreytt störf á eftirfarandi starfseiningum geðþjónustu:
- Bráðalegudeild lyndisraskana (Hringbraut)
- Geðgjörgæsla (Hringbraut)
- Geðrofs- og samfélagsgeðteymi (Kleppur)
- Réttar- og öryggisgeðdeildir (Kleppur)
- Laugarásinn meðferðargeðdeild (Laugarás)
- Legudeild geðrofssjúkdóma (Hringbraut)
- Legudeild lyndisraskana (Kleppur)
- Meðferðareining geð- og fíknisjúkdóma (Hringbraut)
- Útkallsteymi yfirsetu (ýmsar deildir Landspítala)
Vinsamlega skráið deildir sem þið helst viljið starfa á í reitinn "annað" neðst á umsóknareyðublaðinu. Mikilvægt er að umsókn sé vel fyllt út og fylgigögn sem óskað er eftir séu hengd með. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast. Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst.
Landspítali er suðupunktur þekkingar, þróunar og þverfaglegrar samvinnu. Lögð er áhersla á fagmennsku, framþróun og stöðugar umbætur. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
- Samskipti, hvatning, leiðbeining og víðtækur stuðningur
- Hvetja sjúklinga til að taka þátt í daglegri virkni, framfylgja meðferðarsamningum og meðferðaráætlunum
- Virk þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Stuðla að öryggi sjúklinga og samstarfsfólks með virkri þátttöku í varnarteymi geðsviðs
- Umsjón með ýmsum störfum sem snúa að daglegum rekstri deilda
- Starfar af heilindum og stuðlar að góðum samstarfsanda
- Áhugi á að starfa með einstaklingum með geðraskanir
- Nám sem nýtist í starfi
- Reynsla af umönnunarstörfum
- Góð samstarfshæfni, færni í samskiptum og færni í teymisvinnu
- Jákvætt hugarfar, metnaður, frumkvæði og skapandi hugsun
- Stundvísi og reglusemi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi
Með umsókn skal fylgja
- Starfsferilskrá þar sem nám og fyrri starfsreynsla er tilgreind.
- Ef við á stúdentspróf, önnur prófskírteini og/eða staðfesting á hversu mörgum ECTS einingum er lokið í háskóla.
Stjórnendur hafa samband við þá umsækjendur sem þeir hafa hug á að bjóða í viðtal. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Forsenda ráðningar sem háskólanemi hjá Landspítala er að viðkomandi skili staðfestum gögnum um námsframvindu um leið og þau liggja fyrir að loknu vormisseri.
Athugið að sækja þarf sérstaklega um ótímabundin störf á starfasíðu Landspítala.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, ráðgjafi/stuðningsfulltrúi
Tungumálahæfni: íslenska 4/5 enska 3/5