Hjúkrunarnemar - Spennandi hlutastörf með námi á taugalækningadeild
Við sækjumst efti hjúkrunarnemum til starfa í okkar góða hóp í lærdómsríku starfsumhverfi á taugalækningadeild í Fossvogi. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulag (20-100%). Tekið er tillit til námsins við skipulag vakta. Ráðið er í störfin eftir samkomulagi.
Taugalækningadeild þjónar sjúklingum með taugasjúkdóma og starfa þar um 60 manns í þverfaglegu teymi. Lögð er áhersla á góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra. Góður starfsandi er ríkjandi og ótalmörg tækifæri eru til að vaxa í starfi. Við vinnum markvisst að því að gera deildina okkar betri og fögnum nýjum hugmyndum.
Við bjóðum upp á hvetjandi og lærdómsríkt hlutastarf með námi þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla er á samvinnu, virðingu og jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi. Áhugasamir hafi samband við Ragnheiði Sjöfn, deildarstjóra.
- Hlutverk og ábyrgð er í samræmi við starfslýsingar hjúkrunarnema eftir lengd náms
- Þátttaka í teymisvinnu
- Hjúkrunarnemi á öllum stigum náms
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni
- Faglegur metnaður og áhugi á að öðlast færni í hjúkrun sjúklinga með taugasjúkdóma og annarra sem á deildinni dvelja
- Hæfni og geta til að vinna í teymi
- Íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarnemi, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5