Almennt starf í flutningaþjónustu
Landspítali auglýsir laus til umsóknar störf í flutningaþjónustu á Landspítala, bæði í dag- og vaktavinnu. Leitað er eftir jákvæðum og ábyrgum einstaklingi sem býr yfir lipurð í mannlegum samskiptum, stundvísi og heiðarleika.
Flutningaþjónusta veitir afar mikilvæga þjónusta innan veggja Landspítala við deildir, sjúklinga og gesti. Má þá helst nefna flutninga á sjúklingum, rúmum og sýnum eftir beiðnum og fasta flutninga á vörum, lyfjum, líni, pósti og sorpi. Starfsfólk flutningaþjónustu heyrir undir teymisstjóra sem er ábyrgur fyrir því að starfsemin gangi skilvirkt fyrir sig eftir settum markmiðum.
Markmið flutningaþjónustu er að veita framúrskarandi þjónustu við deildir spítalans og létta þannig undir með klínískri starfsemi. Starfið er fjölbreytt og gefandi og verður viðkomandi í miklu samstarfi við annað starfsfólk teymisins sem og starfsfólk deilda. Starfsstöðvar flutningaþjónustu eru á Hringbraut og í Fossvogi en unnið er ýmist á vöktum eða í dagvinnu.
Flutningaþjónusta er hluti af aðfangaþjónustu Landspítala sem tilheyrir rekstrar- og mannauðssviði.
Um er að ræða fullt starf og æskielgt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
- Flutningur á sjúklingum og rúmum á milli deilda
- Flutningur á sýnum, pósti, hraðsendingum, blóðeiningum o.fl.
- Flutningur á vörum til deilda
- Móttaka flutningsbeiðna og útdeiling verkefna
- Móttaka á vörum inn á spítalann
- Önnur tilfallandi verkefni skv. þjónustusamningum við deildir
- Jákvætt og lausnamiðað viðhorf
- Sjálfstæð vinnubrögð og geta til að starfa í teymi
- Þjónustulund, metnaður og frumkvæði
- Góðir samskiptahæfileikar
- Reynsla af þjónustustarfi eða starfi á heilbrigðisstofnun kostur
- Menntun sem nýtist í starfi kostur
- Íslenskumælandi kostur
- Gild ökuréttindi kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Tungumálahæfni: íslenska: 3/5, enska 3/5
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérhæfður starfsmaður, flutningaþjónusta