Hjúkrunarfræðingur á speglunardeild Hringbraut
Við óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing í okkar góða hóp á speglunardeild við Hringbraut. Starfshlutfall og upphaf starfs er samkomulag. Samhliða almennum hjúkrunarstörfum eru í boði fjölbreytt og sérhæfð verkefni sem einungis eru unnin á speglunareiningu. Starfsemin fer aðallega fram á dagvinnutíma en neyðarþjónusta fer fram á bakvöktum.
Speglunareiningin sinnir bæði almennum speglunum en er einnig sú sérhæfðasta á landinu og sinnir því sjúklingum alls staðar að. Á deildinni starfar um 30 manna hópur samhentra starfsmanna, í nánu samstarfi við marga sérfræðinga Landspítala. Starfsstöðvar eru tvær, við Hringbraut þar sem stærri hluti speglana fer fram og í Fossvogi. Deildin er í sókn á mörgum sviðum. Þjónusta við sjúklinga hefur verið bætt og aukin, mikil og góð samvinna er við aðra starfsemi spítalans og hafa svæfingar við flóknari inngrip aukist mikið. Það hefur verið forsenda fyrir því að nýjar tegundir inngripa eru í boði og eru frekari nýjungar og framþróun á stefnuskránni.
Starfsánægja á deildinni er mjög góð og hér skipta góð samskipti og gagnkvæm virðing miklu máli, sem og skýr meðferðarmarkmið og áþreifanlegur árangur. Á deildinni starfar öflugur hópur hjúkrunarfræðinga sem getur miðlað mikilli þekkingu og reynslu. Áhersla er lögð á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og að veita góða og markvissa aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Einstaklingshæfð hjúkrun við undirbúning, fræðslu, framkvæmd og umönnun í og eftir speglanir
- Vinna við speglunaraðgerðir með sérfræðilækni og með aukinni reynslu og þekkingu hjúkrunarfræðings geta inngripin orðið sérhæfðari og meira tæknilega krefjandi
- Vöktun sjúklinga á vöknun speglunardeildar eftir slævingu í speglun
- Lyfjagjafir, slæving, verkjastilling og vöktun sjúklinga á meðan á speglunarinngripum stendur
- Aðstoð við myndgreiningu í sérhæfðum speglunum, s.s. gegnumlýsingu, ómskoðun í speglun og gjöf skuggaefnis í meltingarveg, gallvegi og brisgang við þræðingar
- Þátttaka í bakvaktaþjónustu
- Tækifæri til að taka þátt í eða stýra þróunarverkefnum innan deildarinnar
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Faglegur metnaður og frumkvæði
- Jákvætt viðhorf og góðir samskiptahæfileikar
- Áhugi á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi
- Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 3/5