Teymisstjóri í aðfangaþjónstu Landspítala
Aðfangaþjónusta Landspítala auglýsir eftir teymisstjóra deildaþjónustu. Deildaþjónusta veitir mikilvæga þjónustu á deildum spítalans með rekstrarvörur og lín, m.a. birgðastýringu, pantanir og áfyllingar. Einnig sér teymið um að afgreiða og fylla á fataafgreiðslur spítalans þar sem starfsfólk hefur aðgang að starfsmannafatnaði. Markmið deildaþjónustu er að veita framúrskarandi þjónustu við deildir spítalans og létta þannig undir með klínískri starfsemi.
Við leitum af öflugum teymisstjóra sem hefur brennandi áhuga á að styðja mikilvæga starfsemi aðfangaþjónustu á einum stærsta vinnustað landsins. Starfið er fjölbreytt og gefandi og er teymisstjóri í miklu samstarfi við annað starfsfólk teymisins sem og starfsfólk á deildum spítalans. Hlutverk teymisstjóra deildaþjónustu er að tryggja þjónustu við deildir spítalans með áherslu á skilvirkni, samvinnu og nýsköpun í rekstri og þjónustu. Teymisstjóri ber ábyrgð á daglegri starfsemi teymisins, mönnun, innleiðingu nýrra verkferla og umbótaverkefna, auk þess að þróa og styrkja starfsemi þjónustunnar í takt við markmið Landspítala.
Teymið innan deildaþjónstu telur í dag 24 einstaklinga, en það hefur að undanförnu stækkað hratt þar sem áhersla hefur verið lögð á innleiðingu deilda í þjónustuna. Nú þegar eru allar legudeildir spítalans komnar í þjónustu en mikil tækifæri liggja í að innleiða þjónustu á fleiri deildir og betrumbæta ferla og verklag.
Teymisstjóri heyrir beint undir deildarstjóra aðfangaþjónustu Landspítala. Teymisstjóri er því hluti af stjórnendateymi aðfangakeðju spítalans og mun taka þátt í að þróa starfsemina til framtíðar með áherslu á sjálfvirknivæðingu, nýja tækni og aukna skilvirkni. Önnur teymi innan aðfangaþjónustu eru vöruhús, þvottahús og flutningaþjónusta.
Leitað er að jákvæðum, heiðarlegum og ábyrgum einstaklingi sem býr yfir skipulagi og lipurð í mannlegum samskiptum, hefur brennandi áhuga á teymisvinnu og að byggja upp og viðhalda sterkri liðsheild. Starfsemi teymisins er á Hringbraut og Fossvogi í dag en markmiðið er að útvíkka starfsemina á fleiri starfstöðvar spítalans. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust samkvæmt samkomulagi en æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
- Dagleg stjórnun og skipulag teymis
- Skipulag vakta, mönnunnar og leyfa í samráði við deildarstjóra
- Þjálfun og móttaka nýs starfsfólks
- Umsjón með birgðastýringu, pöntunum og áfyllingum á deildir spítalans
- Stýra umbótaverkefnum til að auka skilvirkni og hagkvæmni í þjónustuferlum
- Þróun og innleiðing á sjálfvirknivæðingu og nýrri tækni
- Tryggja eftirfylgni þjónustusamninga við deildir spítalans
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af stjórnun
- Reynsla af þjónustustörfum eða starfi á heilbrigðisstofnun er kostur
- Tölvuþekking og greiningarhæfni
- Leiðtogahæfni, skipulagshæfni og samskiptahæfni
- Þjónustulund, jákvætt og lausnamiðað viðmót
- Færni til að tjá sig á íslensku og ensku, í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 4/5
Starfsmerkingar: teymisstjóri, aðfangaþjónusta, birgðarstjórnun, önnur stjórnunarstörf