Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á öldrunarlækningadeild L3 Landakoti
Leitum eftir framsæknum hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á hjúkrun aldraðra, stjórnun ásamt gæða- og umbótastarfi. Í boði er spennandi og krefjandi starf og mikil tækifæri til faglegrar þróunar.
Aðstoðardeildarstjórinn starfar náið með deildarstjóra og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun er stuðla að auknum gæðum hjúkrunar, gagnreyndum starfsháttum og öryggi sjúklinga.
Öldrunarlækningadeild L3 er 16 rúma. Skjólstæðingarnir þar hafa gilt færni- og heilsumat og eru að bíða eftir vist á hjúkrunarheimili. Lögð er áhersla á jákvætt framlag sérhvers einstaklings og góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra. Við vinnum markvisst að því að gera deildina okkar betri og fögnum nýjum hugmyndum.
Starfshlutfall er 100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi. Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Borghildi, deildarstjóra.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Vinnur í samráði við hjúkrunardeildarstjóra að skipulagningu á starfsemi deildar
- Ber ábyrgð á verkefnum sem hjúkrunardeildarstjóri felur honum samkvæmt sérstakri verkefnalýsingu
- Er leiðandi í klínísku starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun í hjúkrun
- Ber ábyrgð á starfsemi, mönnun og rekstri deildar í fjarveru og í samráði við hjúkrunardeildarstjóra
- Er ábyrgur fyrir skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar í fjarveru hjúkrunardeildarstjóra
- Vinnur náið með deildarstjóra að mótun liðsheildar
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Stjórnunarþekking og leiðtogahæfni
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfni
- Skipulögð, vönduð og öguð vinnubrögð
- Þekking á þjónustuþáttum Landspítala
- Þekking á verkefnastjórnun og umbótastarfi er æskileg
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Öllum umsóknum verður svarað.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar, stjórnunarstarf, endurhæfing
Tungumálahæfni: íslenska 4/5