Almennur læknir/ tímabundið starf innan blóðlækninga
Laust er til umsóknar starf almenns læknis innan blóðlækninga á Landspítala. Starfið er tímabundið til 6 mánaða. Upphaf starfs er samkvæmt samkomulagi.
Starfið er mestmegnis á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga en einnig á legudeild að hluta. Unnið er í náinni samvinnu við sérfræðilækna í blóðlækningum. Starfið felur í sér þverfaglega teymisvinnu með fjölmörgum öðrum sérgreinum læknisfræðinnar, s.s. skurðlækningum, lyflækningum, myndgreiningu og meinafræði og öðrum fagaðilum.
Starfið nýtist afar vel þeim sem hafa hug á frekari sérnámi í blóðlækningum en er einnig mjög góður grunnur eða viðbót fyrir þá sem hyggja á frekara sérnám í öðrum greinum, t.d. almennum lyflækningum, heimilislækningum, smitsjúkdómum, lyflækningum krabbameina o.fl.
Starfsumhverfið tengt blóðlækningum er lærdómsmiðað og afar fjölbreytt. Læknirinn fær sérstaka starfslýsingu og skipulagða handleiðslu sérfræðilæknis. Fagleg árvekni og endurskoðun klínískra leiðbeininga og verkferla er hluti af fagmennsku deildarinnar.
Vinnulag byggir á samvinnu fjölmargra starfsstétta með það að markmiði að gera meðferð og þjónustu við einstaklinga sem greinst hafa með blóðsjúkdóm/ krabbamein og ættingja þeirra skilvirkari.
- Þátttaka og þjálfun í ráðgjöf varðandi meðferð þeirra sem nýlega eru greindir með blóðsjúkdóm, gerð meðferðaráætlunar og eftirlit með sjúklingum á meðan meðferð stendur
- Greina og meðhöndla bráðavandamál tengd blóðkrabbameinum og lyfjameðferð
- Þátttaka í samvinnu ólíkra sérgreina læknisfræðinnar eins og t.d. samráðsfundum
- Þátttaka í kennslu og vísindastarfi
- Almennt íslenskt lækningaleyfi
- Framúrskarandi læknisfræðileg þekking
- Góð færni og lipurð í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
- Öguð vinnubrögð
- Áhugi á að bæta sig í faglegu klínísku umhverfi
- Gott vald á íslensku máli
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Læknir
Tungumálahæfni: íslenska 3/5