Sérfræðilæknir í svæfinga- og gjörgæslulækningum
Lausar eru til umsóknar stöður sérfræðilækna á svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítala. Reiknað er með vinnuframlagi á öllum einingum svæfinga- og gjörgæsludeildar Landspítala. Starfsemi deildarinnar er fjölbreytt og sinnum við svæfingum og deyfingum fyrir flestar sérgreinar skurðlækninga. Svæfingaþjónusta fyrir fæðandi konur og kvensjúkdóma er hluti af starfsemi svæfinga- og gjörgæsludeildar Landspítala við Hringbraut. Upphaf starfa er samkomulagsatriði. Starfshlutfall 100% og vinnufyrirkomulag er dagvinna með staðarvöktum.
Fyrir utan svæfingar á skurðstofugöngum í Fossvogi og við Hringbraut er svæft alla daga vikunnar á hjartaþræðingarstofum, æðaþræðingastofu, speglunardeild og röntgendeild. Gjörgæsludeildirnar í Fossvogi og við Hringbraut sinna bæði gjörgæslulækningum barna og fullorðinna. Þá sinna læknar með sérhæfingu í verkjameðferð sjúklingum með bráða og langvinna verki á vegum Verkjateymis Landspítala. Á innskriftarmiðstöð sinna svæfingalæknar undirbúningi sjúklinga fyrir aðgerð. Svæfingalæknar manna þyrlusveit Landhelgisgæslunnar í samstarfi við bráðalækna en það er valkvæð viðbót við starfið á svæfinga- og gjörgæsludeild .
Sérfræðilæknum sem ráðnir verða stendur til boða þátttaka í framhaldsmenntunarnámskeiðum Scandinavian Society of Anaesthesiology and Intensive Care Medicine (SSAI).
Á deildinni starfa rúmlega 40 sérfræðilæknar og um 20 sérnámslæknar í þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir spítalans.
- Vinna við svæfinga- og gjörgæslulækningar og verkjameðferð á deildinni
- Vaktir samkvæmt vaktafyrirkomulagi sérgreinarinnar
- Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samráði við yfirlækna og prófessor
- Íslenskt sérfræðileyfi í svæfinga- og gjörgæslulækningum
- Vilji til frekari sérhæfingar í samráði við yfirlækna deildarinnar
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
- Reynsla í kennslu og vísindavinnu er æskileg
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu, gæðavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir, læknir með lækningaleyfi
Tungumálahæfni: íslenska 4/5