Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar - Svæfingadeild Fossvogi
Við leitum eftir metnaðarfullum og framfarasinnuðum hjúkrunarfræðingi í starf aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar á svæfingardeild í Fossvogi. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á stjórnun, búa yfir afburða samskiptahæfni og hafa hæfni til að takast á við breytingar.
Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun er stuðla að auknum gæðum hjúkrunar, gagnreyndum starfsháttum og öryggi sjúklinga. Aðstoðardeildarstjóri er virkur þáttakandi í stjórnendateymi deildarinnar í ýmsum verkefnum tengdum stjórnun, rekstri, þjónustu og mannauði. Starfið felur í sér mikla teymisvinnu þar sem unnið er í góðu samstarfi við þverfagleg teymi og fjölmargt annað fagfólk spítalans.
Í boði er spennandi og áhugavert starf og mikil tækifæri til faglegrar þróunar. Starfshlutfall er 100% og unnið að mestu í dagvinnu. Starfið laust 1. mars 2025 eða eftir samkomulagi.
Á svæfingadeild Landspítala í Fossvogi starfa tæplega 30 svæfingahjúkrunarfræðingar við fjölbreytt og krefjandi verkefni, í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Við bjóðum upp á góðan vinnustað þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, framþróun og þjálfun eftir þörfum hvers og eins.
- Skipuleggur starfsemi deildarinnar í samráði við deildarstjóra
- Ber ábyrgð á verkefnum sem hjúkrunardeildarstjóri felur honum
- Er leiðandi í klínísku starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun í hjúkrun
- Ber ábyrgð á framkvæmd hjúkrunar, rekstri og mönnun deildarinnar í fjarveru deildarstjóra
- Leiðir umbreytingarverkefni og teymisvinnu deildarinnar í samráði við deildarstjóra
- Vinnur náið með deildarstjóra að mótun liðsheildar
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Viðbótarnám í svæfingarhjúkrun
- Klínísk starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Stjórnunarþekking og leiðtogahæfni
- Jákvætt viðhorf og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Þjónustulund, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og færni í teymisvinnu
- Góð íslenskukunnátta og tölvufærni
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, sérfræðingur í hjúkrun, aðstoðardeildarstjóri, hjúkrun, stjórnunarstarf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5