Sérfræðilæknir í handaskurðlækningum
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í handaskurðlækningum. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. apríl 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
Handaskurðlækningateymið er hluti af bæklunarskurðdeild Landspítala og býður sérgreinin upp á líflegt og krefjandi starfsumhverfi og mikil tækifæri til starfsþróunar. Teymið vinnur náið með sjúkra- og iðjuþjálfun þar sem áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga.
Leitað er eftir sérfræðilækni sem hefur áhuga á að vinna að krefjandi verkefnum, sem dæmi má nefna bráðatilvik, meðfæddar missmíðar og færnibætandi aðgerðir, í umhverfi þar sem fjölbreytni, metnaður og þverfagleg teymisvinna eru í fyrirrúmi með áherslu á umbótastarf og öryggi.
- Greining, meðferð og eftirfylgd sjúklinga með vandamál er tengjast sérgreininni
- Þátttaka í göngudeildarþjónustu og samráðskvaðningum og öðrum þeim störfum sem yfirlæknir deildarinnar telur að eigi við
- Þátttaka í bakvöktum sérgreinarinnar
- Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samráði við yfirlækni
- Íslenskt sérfræðileyfi í handaskurðlækningum
- Almenn reynsla og þjálfun í handaskurðlækningum, sérstaklega tengd áverkum/ mjúkvefjum
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði
- Hæfni og geta til að vinna í teymi
- Samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Reynsla í kennslu og vísindavinnu æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Starfsstöð er Landspítali og eftir atvikum önnur sjúkrastofnun sem yfirlæknir hefur sem starfsskyldu að manna.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu, gæðavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir, læknir með lækningaleyfi
Tungumálahæfni: íslenska 4/5