Lífeindafræðingur eða náttúrufræðingur
Lífeindafræðingur, líffræðingur, lífefnafræðingur eða einstaklingur með sambærilega menntun óskast til starfa á ónæmisfræðideild Landspítala. Á deildinni starfa um 30 einstaklingar við þjónusturannsóknir, greiningar og ráðgjöf, kennslu heilbrigðisstétta í ónæmisfræði og vísindarannsóknir. Góður starfsandi er ríkjandi og tækifæri til að vaxa í starfi. Meginhlutverk deildarinnar er að vera leiðandi hvað varðar rannsóknir, greiningu, meðferð og eftirlit ónæmis- og ofnæmissjúkdóma á Íslandi. Auk þess veitir deildin alhliða þjónusturannsóknir á sviði gigtar-, bólgu-, ofnæmis- og sjálfsofnæmissjúkdóma.
Við viljum ráða skipulagðan einstakling með faglegan metnað sem vinnur af nákvæmni og samviskusemi. Viðkomandi þarf að hafa góða samskiptahæfni og eiga auðvelt með að vinna sjálfstætt og í teymi. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingsmiðaða aðlögun. Starfshlutfall er 100% og um dagvinnu er að ræða. Starfið er laust frá og með 1. maí 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið með styttri vinnuviku er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Vinna í frumuflæðisjáreiningu deildarinnar sem sér um þjónusturannsóknir á sjúklingasýnum og taka þátt í uppbygginu og þróun einingarinnar
- Þjónusturannsóknir á frumuflæðisjá (FACS)
- Þjónusturannsóknir á Luminex tæki
- Þróun og uppsetning nýrra greiningaprófa tengdum ónæmissjúkdómum innan einingarinnar
- Þátttaka í kennslu, fræðslu og vísindarannsóknum deildarinnar
- Aðstoð við frumuflæðisjá og sorter tæki í þjónustu við Lífvísindasetur hjá Háskóla Íslands
- Stuðla að góðri þjónustu
- Íslenskt starfsleyfi
- Sjálfstæði, skipulagsfærni og yfirsýn í starfi
- Nákvæmni í vinnubrögðum og faglegur metnaður
- Góð samskiptahæfni og fagleg framkoma
- Hæfni og geta til að starfa í teymi
- Bóklegt og verklegt nám í ónæmisfræði er kostur
- Reynsla í notkun frumuflæðisjár og luminex tækja er kostur
- Reynsla í notkun forritanna FACSuite og FACSDiva er kostur
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, lífeindafræðingur, líffræðingur, náttúrufræðingur, lífefnafræðingur
Tungumálahæfni: íslenska 4/5