Hjúkrunarfræðingur á göngudeild taugasjúkdóma A3 Fossvogi
Við auglýsum eftir hjúkrunarfræðingi til starfa á göngudeild taugasjúkdóma. Á deildinni er veitt sérhæfð göngudeildarþjónusta við sjúklinga með taugasjúkdóma á borð við blóðrásartruflanir í heila, hreyfitaugungahrörnun (MND), heila- og mænusigg (MS), flogaveiki og Parkinsonsjúkdóm.
Á göngudeildinni gefst einstakt tækifæri til að sérhæfa sig í hjúkrun sjúklinga með taugasjúkdóma, með góðum hópi samstarfsfólks. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum. Það er mjög góð samvinna og teymisvinna með sérfræðilæknum einingarinnar og öðrum fagstéttum.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Upphaf starfs er frá 1. apríl 2025 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
- Sérhæfð hjúkrun, fræðsla, stuðningur og eftirfylgd sjúklinga með taugasjúkdóma
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu á göngudeild
- Fræðsla og kennsla til sjúklinga og aðstandenda
- Þátttaka í gæðastarfi og þróun þjónustu innan einingar
- Önnur verkefni á deild í samráði við deildarstjóra
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfileikar
- Sjálfstæði, nákvæmni og faglegur metnaður
- Íslenskukunnátta áskilin
- Reynsla af hjúkrun taugasjúklinga er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5