Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á hjartadeild
Við leitum eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi, leiðtoga og liðsfélaga sem hefur brennandi áhuga á hjúkrun, í starf aðstoðardeildarstjóra á hjartadeild Landspítala. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á stjórnun, búa yfir samskiptahæfni og hæfni til að takast á við breytingar.
Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklagi á deild sem og gæða- og umbótastarfi. Aðstoðardeildarstjóri er leiðtogi á deildinni og virkur þátttakandi í stjórnendateymi deildarinnar í ýmsum verkefnum tengdum stjórnun, rekstri, þjónustu og mannauði.
Starfshlutfall er 90-100% og er starfið laust frá 1. apríl 2025 eða eftir samkomulagi.
Hjartadeild 14EG er 34 rúma og eina sérhæfða hjartadeildin á landinu. Hjúkrun deildarinnar er mjög fjölbreytt og snýr að einstaklingum með margvísleg vandamál frá hjarta. Á deildinni starfar öflugur, framsækinn og áhugasamur hópur starfsmanna. Góður starfsandi er ríkjandi sem og mikill faglegur metnaður og tækifæri til að vaxa í starfi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Vinnur í samráði við hjúkrunardeildarstjóra að skipulagningu á starfsemi deildar
- Ber ábyrgð á verkefnum sem hjúkrunardeildarstjóri felur honum samkvæmt sérstakri verkefnalýsingu
- Er leiðandi í klínísku starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun í hjúkrun
- Ber ábyrgð á starfsemi, mönnun og rekstri deildar í fjarveru og í samráði við hjúkrunardeildarstjóra
- Er ábyrgur fyrir skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar í fjarveru hjúkrunardeildarstjóra
- Vinnur náið með deildarstjóra að mótun liðsheildar
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Stjórnunarþekking og leiðtogahæfni
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfni
- Skipulögð, vönduð og öguð vinnubrögð
- Þekking á þjónustuþáttum Landspítala
- Þekking á verkefnastjórnun og umbótastarfi er æskileg
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, aðstoðardeildarstjóri, stjórnunarstarf, hjúkrun, teymisvinna,
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5