Verkefnastjóri á hönnunar- og framkvæmdadeild
Hönnunar- og framkvæmdadeild Landspítala leitar að öflugum verkefnastjóra í okkar frábæra teymi, sem stendur fyrir breytingum, meiriháttar viðhaldi og þróun á fasteignum spítalans.
Deildin er á rekstrar- og mannauðssviði spítalans og sinnir heildstæðri verkefnastjórnun framkvæmdaverka frá frumhönnun til afhendingar. Verkefnin eru fjölbreytt, bæði innan og utanhúss og snúa bæði að byggingum og tækjum spítalans. Unnið er með notendum í klínískri starfsemi og öðrum hagsmunaaðilum. Deildin sér einnig um eignaumsýslu á fasteignum spítalans sem er með starfsemi í um 160.000 m², víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu. Deildin skorar hátt í starfsánægjukönnunum og þar starfa reynslumiklir verkefnastjórar og verkstjórar.
Við leitum að einstaklingi með háskólapróf sem nýtist í starfi, farsæla reynslu af verkefnastjórnun og brennandi áhuga á að vinna með stjórnendum, starfsfólki og aðilum innan og utan spítalans að framkvæmdum á spítalanum. Starfshlutfall er 100%, sem er 36 stunda vinnuvika, með styttingu vinnuvikunnar.
- Áætlanagerð og stýring verkefna á hönnunar- og framkvæmdastigi
- Kröfulýsingar og eftirlit með meiriháttar viðhaldi bygginga Landspítala
- Samskipti við byggingaryfirvöld, ytri eftirlitsaðila, ráðgjafa, notendur og verktaka
- Þátttaka í stöðugum umbótum og þróun
- Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar, jákvætt lífsviðhorf og lausnamiðuð nálgun
- Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
- Íslenska C1 og enska B2 á ETM sjálfsmatsramma CEFR
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Framhaldsmenntun á háskólastigi æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Verkefnastjóri, verkfræðingur, tæknifræðingur, byggingafræðingur, arkitekt.