Almennur læknir/ tímabundið starf innan nýrnalækninga
Laust er til umsóknar starf almenns læknis innan nýrnalækninga á Landspítala. Starfið er tímabundið til 6-12 mánaða. Upphaf starfs er samkvæmt samkomulagi.
Í starfinu felst vinna við almenna göngudeild, ígræðslugöngudeild, skilunardeildir og ráðgjafaþjónustu. Unnið er í náinni samvinnu við sérfræðilækna í nýrnalækningum.
Starfið nýtist afar vel þeim sem hafa hug á frekari sérnámi í nýrnalækningum en er einnig mjög góður grunnur eða viðbót fyrir þá sem hyggja á frekara sérnám í öðrum greinum, t.d. almennum lyflækningum, heimilislækningum, hjartalækningum, innkirtlalækningum, gigtlækningum o.fl. Þó skal tekið fram að auglýst staða telst hvorki til formlegs sérnáms né sérfræðiréttinda á Íslandi eða í öðrum Evrópuríkjum.
Unnið er eftir starfslýsingu og undir skipulagðri handleiðslu sérfræðilæknis.
- Þátttaka og þjálfun í ráðgjöf varðandi uppvinnslu og meðferð einstaklinga með bráðan og langvinnan nýrnaskaða.
- Þátttaka á vaktalínum námslækna innan almennra lyflækninga
- Meðferð skilunarsjúklinga og einstaklinga með lokastigs nýrnabilun sem ekki eru í skilunarmeðferð
- Greina og meðhöndla bráðavandamál einstaklinga með ígrætt nýra
- Þátttaka í samvinnu ólíkra sérgreina læknisfræðinnar eins og t.d. samráðsfundum
- Þátttaka í kennslu og vísindastarfi eftir atvikum
- Almennt íslenskt lækningaleyfi
- Framúrskarandi læknisfræðileg þekking
- Góð færni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
- Öguð vinnubrögð
- Áhugi á að bæta sig í faglegu klínísku umhverfi
- Gott vald á íslensku máli
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Læknir, almennur læknir
Tungumálahæfni: íslenska 4/5,