Sérfræðingur í kerfisrekstri í Microsoft-umhverfi
Við leitum að öflugum kerfisstjóra með sérstaka áherslu á öryggismál til að tryggja öruggan og áreiðanlegan rekstur upplýsingakerfa á Landspítala. Viðkomandi mun bera ábyrgð á daglegum rekstri tölvukerfa ásamt því að innleiða og viðhalda öryggisráðstöfunum sem tryggja varnir gegn síbreytilegum ógnum í netöryggi. Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt samkvæmt nánara samkomulagi.
Innviðir og rekstur tilheyra þróunarsviði Landspítala og ber ábyrgð á öflun, uppsetningu og rekstri á miðlægum innviðum spítalans, m.a. tölvusölum, netþjónum, öryggiskerfi, gagnagrunnum, gagnageymslum, netkerfi, fjarskiptalínum, símkerfi og póstkerfi (O365) ásamt nauðsynlegu undirlagi. Teymið sinnir einnig tæknilegri ráðgjöf við klíníska starfsemi með það að markmiði að auka skilvirkni, gæði og öryggi á Landspítala.
Á þróunarsviði starfa um 110 einstaklingar og er markmið sviðsins að styðja við þróun heilbrigðisþjónustu framtíðarinnar og veita framúrskarandi þjónustu við klíníska starfsemi.
- Vinna við Microsoft öryggislausnir (Microsoft Defender o.fl.
- Viðbrögð og eftirfylgni með öryggisatvikum og greining á öryggis brestum.
- Þátttaka í gerð og innleiðingu öryggisstefnu og verkferla
- Almennur rekstur á M365 umhverfi.
- Innleiðing, rekstur og eftirlit með kerfum spítalans.
- 3 ára starfsreynsla á sviði kerfisstjórnunar í upplýsingatækni
- Kunnátta á upplýsinga öryggi nauðsynleg
- Kunnátta á rekstri O365 nauðsynleg og sjálfvirknivæðingu kostur
- Tæknilegar vottanir eru kostur
- Háskólamenntun í tölvunarfræði eða öðru tækninámi er kostur
- Metnaður, jákvætt viðmót og lipurð í samskiptum
- Reynsla af því að vinna í teymi
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, vörustjóri, verkefnastjóri, verkfræði, tölvunarfræði
Tungumálahæfni: íslenska 4/5