Sjúkraliði á dag- og göngudeild Hjartagáttar
Laust er til umsóknar starf sjúkraliða á dag- og göngudeild Hjartagáttar við Hringbraut.
Við sækjumst eftir öflugum sjúkraliða sem hefur áhuga á að vinna á frábærri lítilli einingu. Um er að ræða 50% starfshlutfal og starfið laust nú þegar eða eftir samkomulagi.
Á Hjartagátt starfar um 30 manna samheldinn hópur. Á deildinni er veitt þjónusta við hjartasjúklinga sem þurfa að undirgangast inngrip eins og hjartaþræðingar, gangráðsísetningar, brennsluaðgerðir, rafvendingar og fleira.
Hjartagátt er dag- og göngudeild og er opin frá kl. 7:30-20:00 alla virka daga.
- Móttaka og hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
- Virk þátttaka í teymisvinnu
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Geta unnið vel undir álagi
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
- Góðir samskiptahæfileikar
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sjúkraliði
Tungumálahæfni: íslenska 4/5,