Aðstoðardeildarstjóri á sýklarannsóknahluta sýkla- og veirufræðideildar
Laus er til umsóknar staða aðstoðardeildarstjóra á sýklarannsóknahluta sýkla- og veirufræðideildar. Við leitum eftir metnaðarfullum leiðtoga með áhuga á stjórnun ásamt gæða- og umbótastarfi og sem er tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni á deild sem er í stöðugri þróun.
Deildin skiptist í 3 deildarhluta: sýklarannsókn, veirurannsókn og ætagerð. Deildin veitir fjölbreytta og umfangsmikla þjónustu allan sólarhringinn við greiningar sýkinga af völdum baktería, veira, sveppa og sníkjudýra, auk rannsókna, ráðgjafar og kennslu heilbrigðisstétta í sýkla- og veirufræði. Á deildinni starfa um 90 einstaklingar, flestir með sérhæfingu á sviði lífeinda- og náttúrufræði ásamt sérfræðilæknum og sérhæfðu starfsfólki. Boðið er upp á starf á skemmtilegum vinnustað þar sem ör þróun er í rannsóknum og gæðastarfi.
Aðstoðardeildarstjóri heyrir undir deildarstjóra sýkla- og veirufræðideildar. Starfshlutfall er 100% eða skv. samkomulagi. Upphaf starfs er samkomulag en æskilegt að umsækjandi geti hafið störf ekki seinna en í júlí 2025.
- Vinnur í samráði við deildarstjóra að skipulagningu á starfsemi sýklarannsóknarhluta deildarinnar
- Ber ábyrgð á verkefnum sem deildarstjóri felur honum samkvæmt sérstakri verkefnalýsingu
- Er leiðandi í klínísku starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun
- Ber ábyrgð á starfsemi, mönnun og rekstri deildar í fjarveru og í samráði við deildarstjóra
- Vinnur náið með deildarstjóra að mótun liðsheildar
- Almenn störf og vaktir við þjónusturannsóknir á sýklarannsóknahluta deildarinnar
- Íslenskt starfsleyfi lífeindafræðings eða sambærileg menntun
- Starfsreynsla sem lífeindafræðingur eða sambærileg menntun við sýklarannsóknir
- Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi kostur
- Reynsla af stjórnun er kostur
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Framsækinn og dugmikill leiðtogi
- Yfirsýn og skipulagsfærni
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, lífeindafræðingur, aðstoðardeildarstjóri, stjórnunarstarf
Tungumálahæfni: íslenska 5, enska 3