Hjúkrunarfræðingur í DAM teymi geðþjónustu
DAM-teymi Landspítala auglýsir stöðu hjúkrunarfræðings sem lokið hefur klínísku meistaranámi í geðhjúkrun og/eða hlotið sérfræðileyfi Embættis landlæknis í geðhjúkrun.
Teymið er þverfaglegt meðferðarteymi og eitt af sérhæfðum göngudeildarteymum í meðferðareiningu lyndisraskana. Það sinnir um 70 einstaklingum með alvarlegan og langvarandi tilfinningalegan óstöðugleika og er staðsett á Kleppi.
Teymið veitir díalektíska atferlismeðferð (DAM) ásamt annarri þjónustu við notendur og fjölskyldur þeirra. Áhersla er lögð á góðan starfsanda, þverfaglega teymisvinnu og stöðugar umbætur. Í boði eru fjölbreytt tækifæri til vaxtar í starfi með markvissri þjálfun og faglegri leiðsögn. Unnið er í dagvinnu og starfshlutfall er 80-100%. Ráðning er frá 1. maí 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
- Klínísk vinna: Mat á þörfum einstaklings, mat á geðrænum og líkamlegum einkennum, þróun og innleiðing einstaklingsbundinna meðferðaráætlana og málastjórn. Sérhæfður stuðningur við fjölskyldur notenda. Tækifæri til þjálfunar í díalektískri atferlismeðferð og starfsþróunar sem meðferðaraðili.
- Þróunar-, gæða- og rannsóknarstarf: Þátttaka í verkefnum sem lúta að þróun þjónustu við notendur og fjölskyldur þeirra. Þátttaka í eflingu hjúkrunar innan geðþjónustu Landspítala. Mat á árangri þjónustu og umbótum. Þátttaka í rannsóknarstarfi.
- Kennsla og fræðsla: Þátttaka í kennslu- og fræðsluverkefnum innan og utan Landspítala. Fagleg klínísk leiðsögn hjúkrunarfræðinga.
- Ráðgjöf: Samstarf við geðhjúkrunarfræðinga og sérfræðinga í geðhjúkrun ásamt þátttöku í þverfaglegri ráðgjöf.
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Meistaragráða í klínískri geðhjúkrun og/eða sérfræðileyfi í geðhjúkrun
- Þekking á og/eða reynsla af díalektískri atferlismeðferð er kostur
- Einlægur áhugi á geðhjúkrun og þróun hjúkrunar í geðþjónustu
- Áhugi á þjónustu við einstaklinga með alvarlegan og langvarandi tilfinningalegan óstöðugleika og fjölskyldur þeirra, þekking og reynsla af þjónustu við hópinn er kostur
- Vilji til að starfa í þverfaglegu teymi
- Stundvísi, áreiðanleiki og lipurð í samskiptum
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni íslenska 4/5 enska 3/5