Heilbrigðisgagnafræðingur nýrnalækninga
Við leitum eftir heilbrigðisgagnafræðingi til fjölbreyttra og sérhæfðra starfa á starfseiningu nýrnalækninga við Hringbraut. Starfið felur í sér mikil samskipti og fjölbreytt og krefjandi verkefni. Unnið er í teymi með sérfræðilæknum í nýrnalækningum, hjúkrunarfræðingum, öðrum heilbrigðisgagnafræðingum og fagfólki innan nýrnaþjónustu spítalans.
Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í dagvinnu og er starfið laust frá 1. júní eða eftir samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og auknu öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Þátttaka í uppbyggingu miðstöðvar í nýrnalækningum með áherslu á göngudeildarþjónustu
- Umsjón og frágangur sjúkragagna (sjúkraskráa og læknabréfa) og almenn skrifstofustörf
- Símsvörun og tengd þjónusta nýrnalækninga
- Þátttaka i teymisvinnu
- Ýmis verkefni fyrir sérfræðinga og fagfólk sérgreinar
- Þátttakandi í þróun upplýsingatækni við ritun í rafræna sjúkraskrá þjónustunnar
- Vinna að verkefnum tengdum klínískri skráningu
- Starfsleyfi sem heilbrigðisgagnafræðingur, starfsreynsla æskileg
- Öguð, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
- Gott vald á íslensku og ensku
- Góð tölvuþekking og færni í helstu tölvuforritum
- Þekking á sjúkraskrárkerfinu Sögu er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Læknir, almennur læknir
Tungumálahæfni: íslenska 4/5,