Sjúkraþjálfari - Hefur þú áhuga á að vinna á göngudeild bæklunarsjúkraþjálfunar?
Sjúkraþjálfun Landspítala í Fossvogi óskar eftir sjúkraþjálfara. Um er að ræða fastráðningu. Starfshlutfall er 50%.
Á göngudeild bæklunarsjúkraþjálfunar í Fossvogi starfa sjúkraþjálfarar í þremur stöðugildum. Starfið felst í þéttri samvinnu við bæklunar- og handaskurðlækna Landspítalans. Helstu verkefni felast í meðhöndlun hvers kyns áverka á hendur og eins þjálfun eftir hvers kyns bæklunaraðgerðir.
Boðið verður upp á aðlögun í starfið hjá sjúkraþjálfurum göngudeildarinnar.
Fríðindi í starfi eru m.a. samgöngusamningur, styttri vinnuvika o.fl. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Skoðun, mat og meðferð
- Skráning í sjúkraskrárkerfi
- Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
- Þátttaka í þverfaglegum teymum
- Þátttaka í fagþróun og umbótaverkefnum
- Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
- Reynsla og breið þekking á sviði handasjúkraþjálfunar og almennrar bæklunarsjúkraþjálfunar æskileg
- Íslensku- og enskukunnátta æskileg
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: sjúkraþjálfun, hlutastarf, heilbrigðisstarf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5