Leitum að samstarfsfólki í teymi geðlækna á Landspítala
Landspítali leitar að samstarfsfólki í teymi geðlækna á Landspítala. Á spítalanum starfa um 7000 einstaklingar við þjónustu á legudeildum, göngudeildum og bráðadeildum. Á geðsviði spítalans er veitt geðþjónusta á bráðalegudeildum, geðgjörgæslu, fíknigeðdeild, geðendurhæfingardeild og á göngudeildum.
Við leitum nú að geðlæknum með mismunandi sérhæfingu/ reynslu sem hafa yfir að búa mikilli færni í samskiptum, faglegum metnaði og áhuga á að vinna með fólki sem alvarlegar geðraskanir.
Landspítali býður faglegan stuðning, áherslu á endurmenntun og starfsþróun og þátttöku í að þróa og efla vaxandi þjónustu sem er í forystu í geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi.
- Mat og greining á vanda sjúklinga
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Þátttaka í kennslu, fræðslu og handleiðslu læknanema og sérnámslækna
- Þátttaka í gæða-, umbóta-, vísinda- og rannsóknastarfi
- Geðlæknar sinna einnig vöktum og ráðgjöf sérfræðinga á geðsviði
- Íslenskt sérfræðileyfi í geðlækningum
- Faglegur metnaður og áhugi á að starfa með fólki með alvarlega geðræna sjúkdóma
- Sjálfstæði og skipulagsfærni
- Færni í að veita vandaða og gagnreynda meðferð
- Mikil hæfni í samskiptum áskilin
- Þekking á nýjungum í rannsóknum og tengingu við meðferð
- Áhugi á þróun og sérhæfingu í starfi, sveigjanleiki til að tileinka sér nýjungar
- Góð kunnátta í ensku og vilji til að læra íslensku
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af námsgögnum og starfsleyfum.
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum.
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið.
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerking: Heilbrigðisþjónusta, sérfræðilæknir, læknir