Hjúkrunarfræðingur á heila-, tauga- og öldrunarbæklunarskurðdeild
Við óskum eftir að ráða í lausar stöður hjúkrunarfræðinga á B6 í Fossvogi. Við leitum eftir framfarasinnuðum hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á teymisvinnu. Starfið er laust skv. samkomulagi. Unnið er í vaktavinnu og er starfshlutfall samkomulag.
Deildin þjónustar sjúklinga eftir aðgerð eða áverka á heila, mænu og taugum. Hágæslueining fyrir heila- og taugaskurðsjúklinga er einnig starfsrækt innan deildarinnar. Auk þess þjónustar deildin einstaklinga 67 ára og eldri sem hljóta mjaðmabrot. Unnið er eftir hugmyndafræði um flýtibata og mikil áhersla er á teymisvinnu og þverfaglegt samstarf. Á B6 starfar um 60 manna samheldinn hópur fagfólks og ríkir góður starfsandi. Markvisst er unnið að gæðum og umbótum og góð tækifæri eru til starfsþróunar og í boði er einstaklingsbundin aðlögun.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð, samkvæmt starfslýsingu
- Skráning hjúkrunar í samræmi við reglur Landspítala
- Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
- Taka þátt öflugri í þverfaglegri teymisvinnu
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
- Hæfni og geta til að vinna í teymi
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna