Sumarstörf 2024 - Umönnunarstörf innan bráða- lyf og endurhæfingarþjónustu á Landakoti
Ert þú búinn með stúdentspróf? Hefur þú áhuga á störfum innan heilbrigðiskerfisins og vilt kynnast starfsemi Landspítala? Þá erum við með tækifæri fyrir þig.
Landspítali auglýsir eftir starfsfólki í umönnun á Landakoti í sumar. Vaktafyrirkomulag, starfshlutfall og upphaf starfs er samkomulag.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
- Aðstoða sjúklinga við athafnir daglegs lífs og hreyfingu undir leiðsögn sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga
- Tryggja öryggi sjúklinga
- Yfirseta hjá sjúklingum
- Aðstoða við ritarastörf, sjúklingaflutninga, býtibúr o.fl.
- Stúdentspróf
- Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni
- Áhugi á störfum í heilbrigðisþjónustu
- Góð íslenskukunnátta
- Reynsla af þjónustustarfi eða starfi á heilbrigðisstofnun er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins.
Með umsókn skal fylgja:
- Starfsferilskrá þar sem nám og fyrri starfsreynsla er tilgreind.
- Staðfesting á stúdentsprófi.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Stjórnendur hafa samband við þá umsækjendur sem þeir hafa hug á að bjóða í viðtal, öllum umsóknum verður svarað að ráðningum loknum.
Starfsmerking: Heilbrigðisþjónusta, umönnun, sérhæfður starfsmaður