Félagsliði - Rjóður
Félagsliði óskast til starfa í Rjóðri. Í boði er góð einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reyndra starfsmanna á fjölskylduvænum vinnustað með frábæru samstarfsfólki.
Rjóður er deild innan Landspítala, þar er veitt sérhæfð hjúkrun og endurhæfing fyrir börn að 18 ára aldri sem eiga við alvarleg langvinn veikindi og fatlanir að stríða. Rjóður er bæði sólarhringsdeild og dagdeild og þar starfa um 30 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Gott tækifæri er til að þróa með sér faglega þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum.
Starfshlutfall er 50-100%, unnið er í vaktavinnu og er ráðið í starfið frá 1. ágúst 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
- Umönnun langveikra barna sem koma í hvíldarinnlagnir og endurhæfingu
- Almenn störf félagsliða á deildinni
- Skipuleggur og forgangsraðar störfum sínum í samráði við vakstjóra
- Íslenskt starfsleyfi sem félagsliði
- Áhugi og hæfni til að starfa í teymi
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla í umönnun barna er æskileg
- Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, félagsliði, hjúkrun, teymisvinna